Flýtilyklar
Grænfóður
Grænfóður er ræktað á um það bil 15he bæði til beitar og sláttar. Notaðar eru mismunandi blöndur af fræi til að auka fjölbreytni.
Undirsöfn
- <Til baka>
-
Ræktun
Blandað er saman vetrarhveiti og káli, einnig káli, höfrum og rýgresi. þegar lítið rignir eins og oft gerist hér á vorin er gott að geta vökvað flögin til að flýta fyrir að fræ spýri. Þá er bæjarlæknum dælt upp og stór vökvunarvagn keyrir yfir flögin og bleytir vel í þeim.4 Myndir
13.maí.2009 -
Grænfóður
Hér er svo myndir sem eru teknar rúmum 8 vikum seinna þ.e. 14. júlí en sáð var þann 6 maí í þennan akur. Sýna þær afraksturinn, á þessu stykki var blandað saman vetrar hveiti og vetrar repju til helminga og sést vel hvernig þessi blanda kemur út.8 Myndir
12.maí.2009 -
Baunir
Við höfum einnig blandað saman ertum Bohatyr (baunum) og höfrum og kom það bara vel út í sumar. Baunirnar fóru vel af stað og náðu góðum þroska eins og sést á myndunum.12 Myndir
11.maí.2009





















