Holtsel

Vorið 1911 hófu hér búskap Guðrún Leósdóttir og Eggert Jónsson. Þau leigðu

Ábúendur

Vorið 1911 hófu hér búskap Guðrún Leósdóttir og Eggert Jónsson. Þau leigðu jörðina af Magnúsi Sigurðssyni bónda og kaupmanni á Grund. Ársleigan var 7 sauðir og 40 pund af smjöri. Bústofninn var þá 1-2 kýr og ca 40 kindur.

Núverandi ábúendur eru Guðrún Egilsdóttir og Guðmundur Jón Guðmundsson.  Arna Mjöll dóttir þeirra er einnig heimilsföst í Holtseli.  Á myndinni lengst til vinstrii eru svo Svanhildur Eggertsdóttir og Egill Halldórsson sem bjuggu hér frá 1940 til 1980 seinustu árin ásamt dóttur sinni Guðrúnu.

                                   

Búreksturinn hefur tekið miklum stakkaskiptum síðan þetta var. Í búskapartíð Egils og Svanhildar fékkst jörðin keypt og er nú í eigu ábúenda. Einnig keypti Egill helminginn af Miðhúsum sem er næsta jörð og núverandi ábúendur keyptu svo  8 ha. spildu af landi Hólshúsa.

             Stoltir foreldrar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf