Holtsels-Hnoss™
Nýjasta framleiðslan er jógúrt gerð úr unndanrennu, og jógúrtís í mörgum bragtegundum. Þessi jógúrt og ísinn úr henni er nánast fitulaus afurð og hentar því vel þeim sem vilja halda sig frá fitu.Ísinn er framleiddur undir vörumerkinu Holtsels-Hnoss™, en Hnoss var dóttir ástargyðjunnar Freyju og Óðs. Hún var gersemi og eftir henni kallað það sem dýrmætt var.
Framleiðslan hófst 23 apríl 2006 og eru ábúendur í Holtseli fyrstir íslenskra bænda til að framleiða mjólkur- og rjómaís úr eigin mjólk. Þá er einnig framleiddur rjómaís fyrir sykursjúka í fjórum bragðtegundum. Ávaxtaís eða sorbe fyrir þá sem eru með mjólkur- og eða eggjaóþol.Í hefðbundnum rjómaís eru til yfir 300 uppskriftir og það bætist við ein við á mánuði.
Í sorbe eru í boði yfir 100 bragðtegundir. En auðvitað er ekki nema lítill hluti af þessu á boðstólum í einu.
2007 var svo oppnuð lítil verslun og kaffihús þar sem í boði er kaffi, ískökur og ís, þá er einig á boðstólnum hér heim ís í neytendaumbúðum allt frá 100 ml upp í 5 lítra. Á boðstólum eru svona 15 – 25 ólíkar bragðtegundir sumar all verulega framandi. T. d. hefur verið gerður hundasúruís, skyrís og fáfnisgrasís svo eitthvað sé nefnt. Ísinn er framleiddur á bænum og er eingöngu notað eigin mjólk og rjómi. Rjóminn er framleiddur heima á bænum, mjólkin er skilin beint úr kúnum og fer rjóminn svo í ísgerðina án frekari meðhöndlunar þ.e. hann er ekki fitusprengdur.
Ísinn er framleiddur án þess að notuð séu tilbúinn hjálparaefni. Öll bragðefnin eru náttúrleg eftir því sem hægt er. Eggjarauður eru notaðar í staðin fyrir hefðbundin hjálparaefni til ísgerðar og engin rotvarnarefni eru sett í ísinn. Þessi framleiðsla er gerð í samvinnu við félag sem heitir ''Farmhouse Icecream''. Frá þeim koma bragðefni, sykurblöndur og umbúðir. Þessi samtök selja bændum í Evrópu þjónustu sína bæði með vélar fyrir ísgerðina svo og allt annað sem til þarf. Allt frá þróun nýrra uppskrifta til markaðsaðstoðar, bara eftir því sem hver þarf á að halda.





















