Holtsel

Ábúendur hafa nú í bráðum fimm ár flutt inn það sem Danir kalla '' Homopatiske lægemidler'' sem eru mismunandi jurtaseyði sem örva ónæmiskerfi kúnna til

Náttúruvörur fyrir búfé

Ábúendur hafa nú í bráðum fimm ár flutt inn það sem Danir kalla '' Homopatiske lægemidler'' sem eru mismunandi jurtaseyði sem örva ónæmiskerfi kúnna til að ráðast gegn sýkingum, bólgum og hárri frumutölu. Þessum efnum er úðað í munn dýranna sem þýðir að engin útskolun er á mjólk og ekkert lyfjaónæmi myndast. Auðvitað getur þurft að grípa til fúkkalyfja í einhverjum tilfellum. En okkur hefur reynst þetta mjög vel við bráðajúgurbólgu ef hægt er að hefja meðferð um leið og vart verður við einhver einkenni. Þessi efni hafa fengið viðurkenningu til notkunar i lífrænni framleiðslu hjá danska Lægenmiddelstyrelsen en þeir viðurkenna eingöngu ''gamlar'' vörur í þessu tilfelli vörur sem komu á markað fyrir 1994.


Udderyl (Til inntöku, úðist í munn)

Vinnur á móti langvinnum bólgum í mjólkurkirtlum.

Skammtar:    
1. daginn 2 X 20 ml
2. daginn 2 X 20 ml

1. og 3. skipti notast líka Septil

 Notkun gegn of hárri frumutölu.

Skammtar:
1. daginn 2 X 20 ml
2. daginn 2 X 20 ml.

Svo einu sinni í annarri og þriðju viku.

Við geldingu.

Skammtar:20 ml Udderyl við síðustu 4 mjaltirnar

Mamil(Til inntöku, úðist í munn)

Vinnur á móti bráðum bólgum í mjólkurkirtlum.

Skammtar:
1. daginn 2 X 20 ml
2. daginn 2 X 20 ml

 Í 1. og 3. skipti notast líka Septil


Septil (Til inntöku, úðist í munn)

Er efni sem hefur almenna hitahamlandi virkni.
Septil notast með Udderyl og við meðhöndlum á bólgum í mjólkurkirtlum.
Vinnur líka á móti lungnabólgu og klaufkýlum.

Skammtar:
2 X 15 ml á dag í 2 daga.


Wombyl (Til inntöku, úðist í munn)

Vinnur á móti fæðingarvandamálum, föstum hildum og legbólgum.

Skammtar:
1x15 – 20 ml strax fyrir/eftir burð


Panaryl (Til inntöku, úðist í munn)

Vinnur á móti innilokuðum bólgum og stífum hásinum.
Hefur einnig reynst vel gegn stálma.

Skammtar:     
1. daginn 2 x 15 ml
2. daginn 2 x 15 ml


Udder Singe

Tæki til að fjarlægja hárvöxtinn af júgri kúnna Udder Singe brennir með ’’ köldum’’ og hljóðlausum loga sem truflar ekki kýrnar. Þetta gerir léttara að þrífa júgrin og minnkar gerlaflóruna á þeim – sérstaklega þægilegt í fjósum með mjaltaþjóna.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf