Holtsel

Holtsel er upphaflega svokölluð hjáleiga frá Grund og er fyrst og fremst  kúabú. Framleiðslurétturinn er um 240.000 lítrar á ári.  Fjósið var byggt

Um Holtsel

Holtsel er upphaflega svokölluð hjáleiga frá Grund og er fyrst og fremst  kúabú.

Framleiðslurétturinn er um 240.000 lítrar á ári.  Fjósið var byggt 1975.   Það var endurbyggt 2006 og breytt í lausgöngufjós.
Í því eru 64 básar fyrir mjólkurkýr og að auki legubásar fyrir öll gjeldneyti og herbergi fyrir yngstu kálfana þannig að það rúmar um það bil 120 gripi.

Í fjósinu er mjaltabás með 8 mjaltatækjum. Mjólkurfóðrun kálfanna fer fram með tölvustýrðri kálfafóstru. Meðalafurðir kúnna eru  5999 lítrar á ári og kýrnar eru að jafnaði um 45. Mjaltir fara fram kvölds og morgna alla daga ársins.

Kýrnar koma sjálfar inn í mjaltabásinn, þar fá þær kjarnfóður, mismikið eftir afurðum. Síðan er júgrið þvegið vel með heitum rökum klút. Þá er tekið sýni í sýnakönnu nokkrar bunur úr hverjum spena. Síðan er mjaltavélin sett á spenana og mjólkin streymir í stóran glerkút. Að mjöltum loknum er mjólkinni dælt í tankinn í gegnum vatnskæli sem kælir mjólkina strax niður í ca. 8°. Þar tekur rafmagnskælipressa við og kælir mjólkin í 2°. Mjólkurbílinn sækir mjólkina þrisvar í viku.

Á sumrin er kúm og kálfum beytt bæði á gras og grænfóður. Einnig hafa kýrnar aðgang að heilfóðri allt sumarið.

“Í Holtseli hefur verið sýnt fram á að hægt er að reka  hefðbundinn landbúnað á snyrtilegan og jákvæðan hátt bæði gagnvart neytandanum, náttúrunni og dýrunum og að hægt er að vinna eftirsótta hágæða vöru úr íslensku hráefni og skapa ný störf á atvinnusvæði sem eins og önnur hefur þörf fyrir nýsköpun,” sagði  Steingrímur J. Sigfússon  landbúnaðarráðherra þegar hann afhenti ábúendum Landbúnaðarverðlaunin 2009.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf