Skilmálar

 

Holtsels Hnoss kt 690819-0230., Holtsel 605 Akureyri, 866 1618, holtsel@holtsel.is 

Holtsels Hnoss áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Eimskip gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Eimskip um afhendingu vörunnar. Holtsels Hnoss ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Holtsels Hnoss til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er á pöntunum 20.000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% vsk en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Eimskip beint heim að dyrum. Sendingakostnaður er Kr.3000.

 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.


Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir.

Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.

Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands Eystra.